Velkomin á Tjaldsvæðið í Laugardal

Tjaldsvæðið er frábærlega staðsett, við hliðina á sundlaugunum í Laugardal. Auk sundlauganna er stutt í aðra þjónustu og afþreyingu. Má þar m.a. nefna íþróttaaðstöðuna í Laugardalnum, fjölskyldu- og húsdýragarðinn, grasagarðinn og listasafn Ásmundar Sveinssonar. Tjaldsvæðið er opið frá 15. maí – 15. september. 

 

Á svæðinu er mjög góð aðstaða fyrir húsbíla og tjaldvagna. Um 40 bílar geta tengt samtímis í rafmagn og skammt frá svæðinu er aðstaða til að losa ferðasalerni. Ekki þarf að panta gistingu fyrirfram og ekki eru tekin frá pláss. Frá 1.júní - 1. september er 24 tíma gæsla á svæðinu og þurfa því gestir ekki að tilkynna komu sína ef þeir sjá fram á að vera seint á ferð. Sé ferðast saman á mörgum húsbílum eða tjaldvögnum eru menn þó hvattir til að láta vita af ferðum sínum. Stórir tjaldhópar (20+) eru hvattir til að gera slíkt hið sama.


3.6.2010
Sjómannadagurinn
Hátíð hafsins verður haldin um helgina. Þar verður margt að gerast eins og mörg undanfarin ár. Þessi ...  meira

1.6.2010
Mikil umferð um nýjan visiticeland.com
Mikil umferð hefur verið um landkynningarvef Ferðamálastofu visiticeland.com síðustu vikur en ný útgáfa ...  meira

15.5.2010
Farfuglaheimilin í Reykjavík - Umhverfisvottaðir gististaðir
Svanurinn, opinbert umhverfismerki Norðurlandanna, á 20 ára afmæli og í tilefni af því stendur Umhverfisstofnun ...  meira

Fleiri fréttir

Tjaldsvæðið í Reykjavik  Sundlaugarvegur 32  105 Reykjavík
Sími 568 6944  Fax 588 9201  info@reykjavikcampsite.is
Copyright ©www.reykjavikcampsite.is - Allur réttur áskilinn.
Kort